Formaður Grétar Pétur Geirsson, setti fund kl. 19:20 og stakk uppá Leif Leifssyni sem fundarstjóravar það samþykkt.
Þá stakk hann uppá Jóni Eiríkssyni sem ritara og var það einnig samþykkt.
Því næst var tekið til við uppástungur um fulltrúa félagsins á þing landssambandsins en félagið á rétt á 22. fulltrúum.
Eftirfarandi uppástungur bárust:
Aðalbjörg Gunnarsdóttir, Andri Valgeirsson,Anna Guðrún Sigðardóttir, Anna Kristín Sigvaldadóttir,Arnór Pétursson, Ása Hildur Guðjónsdóttir, Ásta Dís Guðjónsdóttir, Bendikt Þorbjörnsson, Einar Andrésson, Grétar Pétur Geirsson, Guðbjörg Halla Björnsdóttir, Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir, Guðmundur Magnússon, Guðríður Ólafsdóttir, Hanna Margrét Kristleifsdóttir, Hannes Sigurðsson, Hulda Steinsdóttir, Jón Eiríksson, Jóna Marvinsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Leifur Leifsson, Ólöf Ríkharðsdóttir, Örn Sigurðsson, Ragnar Gunnar Þórhallsson, Sigmar Maríusson, Sigrós Ósk Karlsdóttir, Sigurður Pálsson, Þorbera Fjölnisdóttir
Þessu næst vour talningarmenn skipaðir og þeir voru:
Ásta Dís Guðjónsdóttir, Hanna Margrét Kristleifsdóttir, Jón Eiríksson.
Samþykkt hafði verið að atkvæði yrðu lesin upp beint og voru Þorbera Fjölnisdóttir og Guðríður Ólafsdóttir fengnar til þess.
Meðan verið var að útbúa kjörseðla gerði Ása Hildur grein fyrir störfum kjörnefndar og fjallaði um lista kjörnefndar sem dreift hafði verið á fundinum. Á honum eru nöfn þeirra sem gefið hafa kost á sér til þeirra embætta sem í boði eru hjá landssambandinu. Nokkuð er um enþá að laust sé í hinar ýmsu nefndir og gerði hún vel grein fyrir því.
Jón Eiríksson fjallaði um hugmyndir um væntanleg mál þingsins og vakti athygli á því að aðildarfélögin gætu og ættu að hafa áhrif á um hvað væri fjallað á þingum fyrir utan hin hefðbundu aðalfundarstörf.
Kosning gekk greiðlega fyrir sig og var því næst gengið til talningar.
Eftir að akvæði höfðu verið talin varð niðurstaðan eftirfarandi:
Nafn | Fjöldi atkvæða |
Grétar Pétur Geirsson | 45 |
Guðríður Ólafsdóttir | 43 |
Hanna Margrét Kristleifsdóttir | 43 |
Anna Guðrún Sigðardóttir | 42 |
Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir | 42 |
Þorbera Fjölnisdóttir | 41 |
Jóna Marvinsdóttir | 40 |
Anna Kristín Sigvaldadóttir | 39 |
Ása Hildur Guðjónsdóttir | 39 |
Leifur Leifsson | 39 |
Jón Eiríksson | 38 |
Sigmar Maríusson | 38 |
Arnór Pétursson | 37 |
Ásta Dís Guðjónsdóttir | 37 |
Örn Sigurðsson | 37 |
Ragnar Gunnar Þórhallsson | 37 |
Hannes Sigurðsson | 36 |
Guðmundur Magnússon | 35 |
Ólöf Ríkharðsdóttir | 35 |
Bendikt Þorbjörnsson | 34 |
Aðalbjörg Gunnarsdóttir | 32 |
Sigrós Ósk Karlsdóttir | 32 |
Varamenn | |
Sigurður Pálsson | 32 |
Guðbjörg Halla Björnsdóttir | 31 |
Hulda Steinsdóttir | 30 |
Andri Valgeirsson | 28 |
Kristín Jónsdóttir | 25 |
Einar Andrésson | 24 |
Ógildir 2 | |
Auðir 0 |
Að talningu lokinni sleit formaður fundi kl. 21:50 og þakkaði fundarmönnum setuna og starfsmönnum fundarins fyrir þeirra störf.
Jón Eiríksson, fundarritari