Afslættir

ÖBÍ hefur tekið saman upplýsingar um fyrirtæki og stofnanir sem veita  fólki sem fær örorkulífeyri afslátt af vörum og þjónustu. Eflaust eru mun fleiri sem veita afslætti og því er um að gera að spyrja. 

  • Framvísa þarf örorkuskírteini sem Tryggingastofnun (TR) gefur út. Þau sem eru með snjallasíma geta náð í stafrænt örorkuskírteini  og haft tiltækt í símanum.
  • Einnig er hægt að fá plastað örorkuskírteini sem TR gefur út  en þá þarf að framvísa því ásamt skilríki með mynd. Þau sem ekki eiga vegabréf eða sambærileg skilríki með passamynd geta sótt um nafnskírteini hjá Þjóðskrá.