Salaleiga

Útleiga á sal Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu að Hátúni 12

Salurinn tekur allt að 100 manns í sæti – leigutaki raðar upp og gengur síðan aftur frá stólum og borðum, nema um annað sé samið.

Salurinn er leigður með þeim borðbúnaði sem fyrir er ( fyrir 100 manns )

Salurinn er einungis leigður út með aðstoðarmanneskju í eldhúsi.

Miðað er við að veisluhaldi ljúki í síðasta lagi kl. eitt að nóttu til vegna eðlis

annarra starfsemi hússins.

Greiða þarf staðfestingargjald innan 30 daga frá pöntun á sal, staðfestingargjald er 10,000,- kr ( óafturkræft). Hafi staðfestingargjald ekki borist á tilsettum tíma fellur bókunin niður.

Og gera þarf upp eftirstöðvar í síðasta lagi við afhendingu lykils. Hægt er að leggja inn á reikning

0111-26-111195 Kt. 570269-1199. Setja þarf í tilvísun dagsetningu og senda

okkur staðfestingu á skrifstofa@sjalfsbjargar.is

Verðskrá:

Leiga á sal: Almennt verð er 45.000 kr. en 23.000 kr. til skuldlausra félagsmanna.

Fyrir veislur allt að 40 manns þarf 1 aðstoðarmanneskju – 3,500 kr á tímann

Í veislur fyrir 45 – 90 manns þarf 2 aðstoðarmanneskjur – 3,500 kr á tímann hvor.

Það er lámark að greiða 4. tíma fyrir aðstoðarmanneskju = 14,000,- kr. ( 28,000,- fyrir tvær)

Gera skal upp við aðstoðarfólk á staðnum við veislulok

Innifalið í salaleigu er þrif á sal en leigutaki verður að ganga frá borðum ,

stólum, þurrka af borðum og sópa salinn.

Hljóðkerfi er leigt út sér, gegn útlagðri tryggingu.

Hljóðkerfi kostar 5.000 kr. en leggja þarf fram tryggingu upp á 10.000 kr. til að

tryggja að farið sé eftir leiðbeiningum starfsmanns um notkun þess.

LEIGUTAKI BER ÁBYRGÐ Á SAL OG INNANSTOKKSMUNUM Á

MEÐAN SALURINN ER Í HANS UMSJÁ

Skrifstofa Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu sér um tímabókanir á sal og er opnunar tími frá:

Mánudaga til fimmtudaga frá kl 10:00 til 14:00.

Föstudaga frá kl 10:00 til 13:30.

Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu

skrifstofa@sjalfsbjargar.is

s:551 7868