Fundargerð félagsfundar 2026

Fundargerð félagsfundar Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu. Haldinn í félagsheimili félagsins Hátúni 12, inngangur 7

Miðvikudagurinn 18. Febrúar 2026

  1. Fundur settur.

Formaður Logi Þröstur Linnet setti fundinn kl: 19:30

Settur félagsfundur

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara.

Stjórn Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu, stakk upp á því að heyra í Fundaþjónusta JCI og hefur Margrét Helga Gunnarsdóttir fengist til að vera fundarstjóri

Linda Sólrún Jóhannsdóttir ritar fundargerð

Samþykkt

  • Inntaka nýrra félaga.

Valdimar Númi Hjaltason

Stefán Guðjónsson

Ívar Örn Ívarsson

Aðalheiður Ingvadóttir

Kristín Alfhild Ákadóttir

Jón Bjarni Pétursson

Samþykkt samhljóða

  • Minnst látinna félaga.

Egill Þór Jónsson

Ingunn Sigurðardóttir

Hrafnhildur Guðfinna Thoroddsen

Hlaðgerður Snæbjörnsdóttir

Mínótu þögn

  • Kosning fulltrúa á landsfund Sjálfsbjargar landssambands hreyfihamlaðra haldinn 24 og 25. Apríl 2026

Kjósa átti 12 fulltrúa.

Viðar Jónsson

Bergur Þorri Benjamínsson

Þuríður Harpa Sigurðardóttir

Valdimar Númi Hjartason

Ólafur Bjarni Tómasson

Grétar Pétur Geirsson

Hannes Sigurðarson

Frímann Sigurnýasson

Harpa Cilia Ingólfsdóttir

Þorbera Þórisdóttir Fjölnisdóttir

Helga Magnúsdóttir

Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir

  • Önnur mál.

Bergur Þorri Benjamínsson: Nefnir að 16. Maí n.k. verða sveitastjórakostningar og vildi benda á að það væri sniðugt fyrir aðildarfélöginn að fá þá sem eru í kostningarbaráttu að ræða við félagsmenn hvers aðildarfélags.

Kristín R. Magnúsdóttir: ræðir um að fá fleiri félagsmenn á fundinn, það voru bara nokkar hræður þarna, vill fá fjöldan eins og kemur í bingó aðra hverja viku.

Hún talar líka um að auglýsa þessa fundi í lyftunni í Sjálfsbjargarhúsinu

Þuríður Harpa: þakkaði kærlega að fá að mæta í saltkjöt og baunir á sprengidegi. Hún er ánægð með að Halla Tómasdóttir forseti er boðið og spyr hvað lengi forsetinn hefur komið hingað á sprengidegi

Linda Sólrún Jóhannsdóttir: svaraði því að hann hefur komið alveg síðan Ólafur Ragnar Grímsson var forseti.

Bergur Þorri Benjamínsson: segir að Jóhanna Vigdis fréttamaður hafði haft samband við hann út af súpunni á sprengidag hvort, forsetinn væri alltaf boðið í súpu og afhverju fréttirnar fjölluðu ekki um það frekar en að tala við fólk í kringunni hvað það ætti að kaupa sér i búðum.  

Þuríður Harpa – spyr út í auglýsingu með framboð til aðalfundar Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu og spyr hverjir eru í framboði

Linda Sólrún Jóhannsdóttir segir frá því og fer yfir listann um þá sem eru i framboði

Fundargerð lesin upp til samþykktar – samþykkt

Fundi slitið: 20:00