
Aðalfundur Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu. Haldinn í félagsheimili félagsins Hátúni 12, inngangur númer 7, miðvikudaginn 4. mars 2026 klukkan 19:30.
1.
Fundur settur
Formaður Logi Þröstur Linnet setti fundinn klukkan 19:39.
2.
Kosning fundastjóra og fundarritara
Logi Þröstur stakk upp á því að Margrét Helga Gunnarsdóttir yrði fundarstjóri og Ríkey Jóna Eiríksdóttir sem fundarritari, báðar frá JCI. Samþykkt samhljóða. Margrét þakkaði traustið sem okkur var sýnt að stýra þessum fundi og sagði að þær hefðu enga hagsmuni að gæta heldur að farið væri eftir boðaðri fundadagskrá. Margrét lagði til að færa lið 7 þangað til eftir kosningar til þess að nýta kaffihléð til þess að telja atkvæði. Samþykkt samhljóða.
3.
Inntaka nýrra félaga
Björn Gunnlaugsson bættist við þann 25. febrúar 2026.
4.
Minnst látinna félaga
Enginn félagsmaður hafði fallið frá síðan á félagsfundi þann 18.febrúar 2026.
5.
Skýrsla stjórnar á störfum félagsins á síðastliðnu starfsári og kynning á starfstilhögun komandi starfsárs.
Logi Þröstur flutti skýrslu stjórnar sjá fskj. 5.1. Hann fór yfir það helsta sem hefur verið gert á árinu. Það helsta sem má nefna var að rekstur félagsheimilisins hefur gengið vel, 30 félagar fengu aðstoð við ýmis mál og breytingar á starfsmannamálum. Vísað til stjórnar að skoða félagatalið v. talningar í skýrslu stjórnar og ástæður þess að félagar hættu í félaginu. Ábending til stjórnar að á heimasíðu félagsins er félagatal og má þar sjá félagafjölda í sögu félagsins.
6.
Afgreiddir endurskoðaðir reikningar félagsins.
Benedikt Þór Jónsson lagði fram ársreikning ársins 2025 og fór yfir niðurstöður hans, sjá fskj. 6.1. Niðurstaða rekstrar ársins var jákvætt um kr. 1.222.813.- og eigið fé í árslok var jákvætt um kr. 112.709.713.- Ársreikningur var samþykktur með öllum greiddum atkvæðum.
7.
Lagabreytingar
Engar lagabreytingar bárust fyrir fund.
8.
Kosning í stjórn og varastjórn
Kosið var til formanns og gjaldkera til tveggja ára. Ritara til eins árs og þrjá varamenn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs.
•
Björk Sigurðardóttir og Harpa Cilia Ingólfsdóttir gáfu kost á sér til formanns. Frambjóðendur sögðu stuttlega frá sjálfum sér. Kosið var með leynilegri kosningu.
•
Grétar Pétur Geirsson gaf kost á sér til gjaldkera
•
María Jónsdóttir gaf kost á sér til ritara.
•
Valdimar Númi Hjaltason, Leifur Leifson og Margrét Lilja Aðalsteinsdóttir til varamanna til tveggja ára.
o
Kallað var eftir tveimur varamönnum til eins árs þar til eftir kaffihlé.
9.
Kaffihlé
Eftir hlé var farið yfir niðurstöður kosninga:
•
Formaður: Harpa Cilia Ingólfsdóttir hlaut kosningu með 14 atkvæðum á móti 10 atkvæðum.
•
Varaformaður: Bergur Þorri Benjamínsson situr áfram
•
Gjaldkeri: Grétar Pétur Geirsson
•
Ritari: María Jónsdóttir
•
Meðstjórnandi: Ólafur Bjarni Tómasson situr áfram
•
Varamenn til tveggja ára: Valdimar Númi Hjaltason, Leifur Leifsson og Margrét Lilja Aðalsteinssdóttir.
•
Varamenn til eins árs: Björk Sigurðardóttir og Sævar Guðjónsson.
10.
Kosning skoðunarmanna
Lagt var til að Víðir Jónsson, Ásta Þórdís Skjaldar Guðjónsdóttir og Guðbjörg Kristín Eiríksdóttir yrðu skoðunarmenn reikningar. Þorbera Fjölnisdóttir gaf kost á sér sem varaskoðunarmaður. Samþykkt samhljóma.
11.
Kosning kjörnefndar
Kallað var eftir framboðum í kjörnefnd, óskað var eftir tveimur aðalmönnum og einum til vara.
Guðríður Ólöf Ólavíudóttir gaf kost á sér sem aðalmaður, samþykkt samhljóða. Vísað til stjórnar að finna einn aðalmann og einn varamann. Samþykkt samhljóða.
12.
Önnur mál
•
Kristín ræddi um aðstæður á salernum sem henta ekki vegna aðgengis. Vísaði hún til stjórnar að knýja fram úrbóta á almenningssalerni.
•
Grétar ræddi um fundarsetu.
•
Bergur Þorri þakkaði fráfandi stjórn fyrir sín störf.
•
Þuríður Harpa óskaði nýrri stjórn með kjörið og þakkaði fráfarandi stjórn fyrir sín störf. Lagði til að hittast í þriðjudagsúpu og styrkja súpusjóðinn í leiðinni.
•
Hapra þakkaði fyrir traustið sem sér var sýnt með kosningu í embætti formanns. Hlakkaði til samstarfsins á komandi ári. Þakkaði Lindu fyrir vel unnin störf.
•
Guðríður þakkaði fyrir fundinn.
•
Ásta spurði hvort búið væri að manna fyrir landsfund og gaf hún kost á sér til setu á landsþingi þar sem eitt sæti var laust. Hlaut hún lófatak fyrir það.
•
Logi Þröstur fór stuttlega yfir starf sitt í stjórn og þakkaði fyrir sig.
13.
Fundagerð lesin upp til samþykktar
Fundaritari fór yfir fundargerð. Eftir áorðnar breytingar var fundargerðin samþykkt.
14.
Fundi slitið
Fundarstjóri sleit fundi kl 21:26
