Hvernig sæki ég um P-merki?
Stæðiskortið (P-merkið) er gefið út af sýslumannsembætti á því svæði sem þú býrð á og það er gefið út á persónu en ekki bílnúmer og er einungis heimilt að gefa út eitt kort á hvern einstakling. Til að sækja um P-merkið þarf að fylla út umsókn á vef viðkomandi sýslumanns:
- Umsóknareyðublað fyrir P-stæðismerki – þegar slegið er á eyðublaðið dettur það niður á skjáinn þin sem pdf skjal og þú þarft að fylla það inn.
Umsókninni þarf að fylgja:
- Læknisvottorð um hreyfigetu og sendir læknirinn það beint á næsta sýslumannsembætti.
- Þá þarf að koma hefðbundinni passamynd af umsækjanda til sýslumannsins – fyrr verður stæðismerkið ekki unnið.
- Þá þarf að mæta á sýslumannsskrifstofuna og gefa undirritunarsýnishorn þess sem stæðismerkið er stílað á.
- Þá má sækja stæðismerkið nokkrum dögum síðar eða láta póstsenda það heim til umsækjandans.
Ef foreldri/forráðamaður sækir um P-merki fyrir fatlað barn, þá á mynd af barninu að fylgja með umsókninni. Ef viðkomandi getur ekki gefið rithandarsýnishorn er því sleppt.
Stofnun eða heimili þar sem dvelja hreyfihamlaðir einstaklingar getur sótt um sameiginlegt stæðiskort fyrir bifreið í sinni eigu til flutnings fyrir hreyfihamlaða einstaklinga. Skilyrði fyrir útgáfu slíks korts er að það sé eingöngu notað við slíkan flutning en ekki við annars konar nýtingu bifreiðarinnar. Læknisfræðileg viðmið, sbr. 2. mgr. 3. gr., skulu lögð til grundvallar við mat á beiðni og afgreiðslu. Sjá nánar Reglugerð nr. 1130/2016 um útgáfu og notkun stæðiskorts fyrir hreyfihamlaða.
Það kostar ekkert að fá P-stæðiskort og það er yfirleitt tilbúið eftir 2-3 daga eftir að öll gögn hafa borist til sýslumanns og þarf þá að sækja það eða láta senda í pósti á herimili viðkomandi.
Stæðiskortið er gefið út í tiltekinn tíma, að hámarki 5 ár en ekki skemur en 2 ár. Ef þörf er tímabundin má gefa út stæðiskort í skemmri tíma (jafnvel nokkra mánuði en það þarf að koma fram í læknisvottorði að þörfin sé tímabundin). Ef vetrarfærð veldur hreyfihömlun sérstaklega má gefa út stæðiskort er gildir fyrir tímabilið frá 15. október til 1. maí.
Endurnýjun P- merkis
Þegar sótt er um endurnýjun P-merkis þarf að skila inn sömu gögnum og þegar sótt er um í fyrsta skipti.
Hvert fer ég með umsókn um P-merki?
Einstaklingar sem búsettir eru á höfuðborgarsvæðinu fara með umsóknina á skrifstofu sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu að Hlíðarsmára 1, 201 Kópavogi. Einstaklingar búsettir í öðrum sveitarfélögum sækja um hjá sýslumanni í sinni heimabyggð.
Hvernig nýtist P-merkið?
Hreyfihamlaðir einstaklingar eiga rétt á P-merki sem gefur þeim leyfi til að leggja í sérmerkt stæði fyrir fatlað fólk. Tryggja þarf að framhlið merkisins og gildistími sjáist vel í framrúðu bílsins, annars er mögulegt að gefin sé út sekt ef kortið er skoðað.
Hreyfihamlaðir einstaklingar sem ekki eru með bílpróf geta einnig átt rétt á P-merki, sjá grein nr. 2 í reglugerð hér fyrir neðan.
Hreyfihamlaðir einstaklingar með P-merki hafa leyfi til að leggja í stæði þar sem gjaldskylda er (stöðumælir) án þess að greiða í stöðumælinn, þetta á þó ekki við um bílastæðahús.
Plastvasa utan um P-merkið sem hægt er að festa í framrúðu bílsins, má fá í Þjónustuveri Reykjavíkurborgar (Borgartúni 12 – 14).
Ferðalög erlendis
Sýslumenn gefa út P-merki Evrópusambandsins sem gilda innan Evrópusambandsríkja og einnig víðar. Í umsókninni um P-merki þarf að merkja sérstaklega við hvort að þörf sé á að nota stæðiskortið í öðru EES-ríki.
Í bæklingi frá Evrópusambandinu má finna upplýsingar um notkun á stæðiskorti fatlaðs fólks innan Evrópusambandsins og skilyrði í hverju aðildarríki.
Innan Bandaríkjanna er misjafnt eftir fylkjum hvort sækja þarf sérstaklega um P-merki eða hvort tekin séu gild P-merki annarra ríkja. Í Bandaríkjunum sér Department of Motor Vehicles um útgáfu P-merkja. Í Florida þarf að sækja sérstaklega um skammtíma P-merki.
Hægt er að kynna sér upplýsingar um notkun stæðiskort fyrir fatlaða ferðamenn eftir löndum á vefsíðu FIA
Erlendir ferðamenn
Erlendir ferðamenn sem hafa fengið útgefið P-merki í sínu heimalandi geta notað þau á Íslandi. Merkin þurfa að vera vel sýnileg í framrúðu bílsins. Sjá einnig nánar upplýsingar fyrir erlenda ferðamenn með P-merki á vefsíðu FIA