Um félagið

Ýmsar gagnlegar upplýsingar um félagið

Sjálfsbjörg félag hreyfihamlaðra á höfuðborgarsvæðinu  var stofnað 27. júní  árið 1958 og var annað Sjálfsbjargarfélagið á landinu.

Markmið félagsins er eins og segir í lögum þess

  • Markmið félagsins er, að vinna að fullkominni þátttöku og jafnrétti hreyfihamlaðra og annarra fatlaðra, á öllum sviðum þjóðlífsins.
  • Hafa áhrif á ríki- og sveitastjórnir, hagsmunasamtök og einstaklinga.
  • Kynna félagið til dæmis með útgáfu á kynningarefni um málefni fatlaðra.
  • Efla félagslíf fatlaðs fólks.

Félagið rekur skrifstofu í Sjálfsbjargarhúsinu Hátúni 12. Inngangur númer 7. Starfsmaður skrifstofu er Anna Kristín Sigvaldadóttir Skrifstofustjóri.