1. grein.
Félagið heitir Sjálfsbjörg, félag hreyfihamlaðra á höfuðborgarsvæðinu. Félagið starfar samkvæmt lögum nr. 110/2021 um félög til almannaheilla. Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Starfssvæðið er Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavogur, Reykjavík, Seltjarnarnes og Mosfellsbær.
2. grein.
Félagið á aðild að Sjálfsbjörg, landssambandi hreyfihamlaðra (lsh).
3. grein.
Markmið félagsins er, að vinna að fullkominni þátttöku og jafnrétti hreyfihamlaðra og annarra fatlaðra, á öllum sviðum þjóðlífsins.
Hafa áhrif á ríki– og sveitastjórnir, hagsmunasamtök og einstaklinga.
Kynna félagið til dæmis með útgáfu á kynningarefni um málefni fatlaðra.
Efla félagslíf fatlaðs fólks.
Félagið er fjármagnað með félagsgjöldum, leigutekjum, sölu varnings og styrkjum frá einstaklingum, fyrirtækjum og opinberum aðilum sem er ráðstafað í félagsstarf, rekstur eigna félagsins og launakostnað.
4. grein.
Félagsmaður getur hver sá orðið sem styður markmið félagsins. Fullgildur félagsmaður telst sá sem greiðir félagsgjald eins og það er ákveðið á aðalfundi ár hvert. Að öðrum kosti hefur hann ekki kosningarétt á fundum félagsins.
Börn yngri en 16 ára eru undanþegin félagsgjöldum.
Félög og stofnanir geta átt aðild að félaginu, en án atkvæðisréttar og kjörgengis.
Á aðalfundi eða félagsfundi skal greint frá fjölda nýrra félaga og nöfn þeirra síðan skal bera upp tillögu til samþykktar nýrra félaga en stjórn félagsins er heimilt að taka inn í félagið hvern þann, sem flytur á félagssvæðið og hefur verið félagi í öðru Sjálfsbjargarfélagi.
Segja hve margir félagar hafi látist og nöfn þeirra frá síðasta fundi.
Á aðalfundi skal sagt hversu margir hafa sagt sig úr félaginu síðastliðið almanaksár.
Ef félagsmaður hefur ekki greitt félagsgjöld til félagsins í þrjú ár í röð þá skal fella hann út af félagaskrá.
Stjórn má víkja félagsmanni úr félaginu að undangenginni skriflegri áminningu ef hann verður sannur að sök að því að vinna gegn markmiðum félagsins eða hagsmunum þess.
5. grein.
Félagsfundur er lögmætur, ef hann hefur verið boðaður með sannanlegum hætti með minnst tveggja vikna fyrirvara.
Heimilt er að fundarmenn sitji fundinn í gegnum fjarfundabúnað.
6. grein.
Reikningsár félagsins er almanaksárið. Endurskoðaðir ársreikningar skulu lagðir fyrir stjórn sem leggur þá fyrir aðalfund til fullnaðarafgreiðslu. Undirritaðir reikningar skulu liggja fyrir eigi síðar en sex mánuðum eftir lok reikningsárs. Reikningar skulu liggja frammi á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.
7. grein.
Á aðalfundi skal kjósa formann, varaformann, gjaldkera, ritara og meðstjórnanda í stjórn auk fimm varamanna til tveggja ára. Ætíð skal formaður félagsins vera hreyfihamlaður auk þess skal meirihluti stjórnarmanna annarsvegar og hins vegar varamanna í stjórn félagsins vera hreyfihamlaðir.
a) Annað árið séu kosnir formaður og gjaldkeri og 3 varamenn. En hitt árið varaformaður, ritari, meðstjórnandi og 2 varamenn.
b) Þá skal á hverjum aðalfundi kjósa þrjá skoðunarmenn reikninga og einn til vara til eins árs.
c) Varamenn taka sæti í forföllum aðalmanna.
d) Meirihluti stjórnar ritar firma félagsins.
e) Fulltrúar sem kosnir eru á aðalfundi sem aðalmenn eða varamenn í stjórn, í nefndir og skoðunarmenn skulu ekki sitja í sömu stjórn, varastjórn nefnd eða sem skoðunarmenn lengur en 6 ár samfellt. Sá sem kosinn er formaður félagsins getur þó setið í 6 ár þrátt fyrir að hann hafi setið í stjórn í öðru embætti en formanns.
f) Kjósa skal á aðalfundi þriggja manna kjörnefnd til eins árs sem annast undirbúning og framkvæmd stjórnarkjörs og kosningar á aðalfundi næsta árs í samvinnu við stjórn félagsins.
g) Tillögur kjörnefndar skulu liggja frammi á skrifstofu félagsins í fjórar vikur fyrir aðalfund.
h) Tillögum félagsmanna um einstaka menn til stjórnarkjörs skulu berast skrifstofu félagsins eða kjörnefnd minnst 2 vikum fyrir aðalfund og vera skriflegar.
i) Allir lögráða félagsmenn hafa kjörgengi í öll embætti á aðalfundi. Framangreind krafa um lögræði á ekki við um kjörgengi í kjörnefnd.
8. grein.
Aðalfund skal halda fyrir lok marsmánaðar ár hvert og skal hann boðaður með sannanlegum hætti með minnst fimm vikna fyrirvara.
Heimilt er að fundarmenn sitji fundinn í gegnum fjarfundabúnað.
Ef fresta þarf aðalfundi með tveggja vikna fyrirvara eða skemur þá skal boða til nýs aðalfundar eins fljótt og auðið er og hann boðaður með sannanlegum hætti að minnsta kosti fjórtán sólahringa fyrirvara. Ef aðalfundi er frestað áður en tvær vikur eru að aðalfundi þá skal boða til nýs aðalfundar eins fljótt og auðið er og hann boðaður með sannanlegum hætti að minnsta kosti fjögra vikna fyrirvara og auk þess að opna fyrir innsendingu lagabreytinga og framboða í stjórn og varastjórn sem stendur til tveimur vikum fyrir aðalfund.
Tilgreina skal í fundarboði ef fyrir liggja tillögur til lagabreytinga.
Fastir liðir aðalfundar skulu vera:
a) Skýrsla stjórnar um störf félagsins á síðastliðnu starfsári og kynning á starfstilhögun komandi starfsárs.
b) Afgreiddir endurskoðaðir reikningar félagsins.
c) Lagabreytingar.
d) Ákvörðun um félagsgjald.
e) Kosningar.
f) Önnur mál.
9. grein.
Lögum þessum verður einungis breytt á löglegum aðalfundi og þarf samþykki 3/4 hluta greiddra atkvæða svo lagabreyting nái fram að ganga. Til þess að slíta félaginu eða sameina það öðrum félagsskap, þarf 3/4 hluta greiddra atkvæða á löglegum aðalfundi.
Tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórn félagsins í síðasta lagi 1/2 mánuði fyrir aðalfund og liggja frammi á skrifstofu félagsins minnst viku fyrir fundinn.
10. grein.
Hafi verið samþykkt að slíta félaginu skulu eignir þess, ef einhverjar eru, afhentast stjórn Sjálfsbjargar, landssambands hreyfihamlaðra, er skal annast þær og ávaxta, uns annað félag með sama starfsgrundvöll rís upp á félagssvæðinu. Þá er skylt að afhenda því eignirnar til fullra afnota.
11. grein.
Þar sem ákvæði þessa samþykkta segja ekki til um hvernig með skuli farið skal hlíta ákvæðum laga nr. 110/2021 um félög til almannaheilla, svo og öðrum lagaákvæðum er við geta átt.
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Samþykkt á aðalfundi Sjálfsbjargar félags hreyfihamlaðra á höfuðborgarsvæðinu þann 26. mars 2024.