Ýmsar gagnlegar upplýsingar um félagið
Sjálfsbjörg félag hreyfihamlaðra á höfuðborgarsvæðinu var stofnað 27. júní árið 1958 og var annað Sjálfsbjargarfélagið á landinu.
Markmið félagsins er eins og segir í lögum þess
- Markmið félagsins er, að vinna að fullkominni þátttöku og jafnrétti hreyfihamlaðra og annarra fatlaðra, á öllum sviðum þjóðlífsins.
- Hafa áhrif á ríki- og sveitastjórnir, hagsmunasamtök og einstaklinga.
- Kynna félagið til dæmis með útgáfu á kynningarefni um málefni fatlaðra.
- Efla félagslíf fatlaðs fólks.
Félagið rekur skrifstofu í Sjálfsbjargarhúsinu Hátúni 12. Inngangur númer 7. Starfsmaður skrifstofu er Anna Kristín Sigvaldadóttir Skrifstofustjóri.