Fundargerð félagsfundar Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu. Haldinn í félagsheimili félagsins Hátúni 12, inngangur 7
miðvikudaginn 12. febrúar 2025 klukkan 19:30.
- Fundur settur.
Formaður Logi Þröstur Linnet setti fundinn klukkan 19:30 og bauð fólk velkomið.
- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Formaður Logi Þröstur Linnet stakk upp á Sævari Guðjónssyni sem fundarstjóra og Birgittu Rós Nikulásdóttir í embætti fundarritara.
Samþykkt samhljóða
Sævar greindi frá lögmæti fundarins. Fundurinn var löglegur samkvæmt fimmtu grein laga félagsins.
- Inntaka nýrra félaga.
Þórður Ólafsson
Davíð Sigurður Sigurðsson
Róbert R. Ólafsson
Ólafur Ásgrímsson
Helgi Hrafn Pálsson
Styrmir Hallsson
Karen Linda Einarsdóttir
Hlín Íris Arnþórsdóttir
Súsanna Finnbogadóttir
Þau voru samþykkt sem nýir félagar í félaginu.
- Minnst látinna félaga.
Brynhildur Fjölnisdóttir
Sigurjón Ingvarsson
Marteinn Jónsson
Jens Einar Þorsteinsson
Ásta María Eggertsdóttir
Hugrún Stefnisdóttir
Ólafur Ólafsson
Sigríður Jakobsdóttir
Sigurður Gunnar Þorsteinsson
Steinn Sævar Guðmundsson
Þóra Erlendsdóttir
Örn Bjarnason
Þeirra var minnst með andartaks þögn.
- Kynning á tillögu að deiliskipulagi Hátúnslóðanna 10, 12, 14.
Sigríður Agnes Sigurðardóttir (Sirrý) framkvæmdstjóri Sjálfsbjargar landsambands hreyfihamlaðra kynnti nýtt deiliskipulag fyrir fundarmönnum.
Spurt um tímaramma framkvæmda.
Sirrý svaraði því að Brynja leigufélag vilji byrja framkvæmdir um leið og leyfi fæst til.
Anna Kristín Sigvaldadóttir spurði hvort að Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu hefði ekki þurft að vera með í þessu samtali.
Sirrý sagði að það hafi ekki þurft þar sem landssambandi eigi meirihlutann af lóðunum og það sé móðurfélag Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu.
Guðrún Elísabet Bentsdóttir spurði hvort að fatlaðir hafi forkaupsrétt af íbúðum á þessu svæði.
Sirrý segir að allar íbúðir sem Brynja eigi séu með forgang fyrir fatlaða eða öryrkja. Engar kvaðir hafa verið settar á aðra byggingaraðila á svæðinu.
Lagt til bóka að það verði lögð áhersla á að fatlaðir hafi forgang að leiguhúsnæði eða forkaupsrétt af eignum á þessu svæði.
Sirrý sagði að Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu þyrfti að ákveða hvort þau vilji fá aðra eign á svæðinu sem henti betur eða halda í núverandi húsnæði.
Sævar Guðjónsson spurði hvort að uppkaup á eignarhlut Mæðrastyrksnefndar í nýbyggingu við austur enda Hátúns 12 sé hafið Sirrý sagði það ekki hafið en til þess að eiga fyrir þeim kaupum þyrftu landssamtökin að byrja á því að selja eignir [byggingarétt].
Spurt var hvort það sé inni á planinu að Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu fái húsnæði á þessu svæði. Sirrý svaraði að það væri ekki hluti af þessu plani en það þurfi að skoða komi til þess að Sjálfsbjörg á höfuðborgarsvæðinu ákveði að selja.
Kristín R. Magnúsdóttir spurði hvað verði um sundlaugina. Sirrý sagði að landssamtökin vilji halda í sundlaugina.
Spurt var um hvort það verði breytingar tengt íþróttafélaginu. Sirrý svaraði að íþróttafélagið eigi það lítið byggingarland að það eru litlar breytingar þar. Íþróttafélagið getur bætt við hæðir ofan á sitt hús en annað ekki.
Kristín spurði varðandi reglugerð um að það séu 90 cm dyr í nýbyggingum sé haldið til haga í nýbyggingum.
Sirrý þekkir ekki til þess beint en sagði að það yrði passað upp á aðgengi á þessu byggingarlandi.
Spurningar varðandi bílastæðin. Sirrý greindi frá því það séu ekki bílastæði við öll húsin en bílastæðahús yrðu á svæðinu.
- Kosning fulltrúa á landsfund Sjálfsbjargar landssambands hreyfihamlaðra haldinn 25 og 26.apríl 2025.
Kjósa átti 12 fulltrúa.
Hanna Margrét Kristleifsdóttir
Grétar Pétur Geirsson
Logi Þröstur Linnet
Ólafur Bjarni Tómasson
Linda Sólrún Jóhannsdóttir
Guðrún Elísabet Bentsdóttir
Hannes Sigurðsson
Rúna Baldvinsdóttir
Sóley Björk Axelsdóttir
Elísabet Magnúsdóttir
Áðurtaldir samþykktir til að sitja landsfund fyrir félagið.
Stjórn var falið að finna að minnsta kosti tvo fulltrúa og varamenn fyrir landsfundinn.
Samþykkt samhljóða
- Önnur mál.
Kristin greindi frá því að hún gæfi ekki kost á sér til setu á landsfundi vegna þess að ekki hafi verið tekið tillit til þeirra sem heyri illa á fundunum til þessa. Þetta sé aðgengismál en engin breyting hafi orðið á og treysti hún sér því ekki til að mæta.
Fundargerð lesin upp til samþykktar
Fundargerð var samþykkt samhljóða.
Fundi slitið klukkan20:13.