Hér má sjá töflu yfir nefndir sem hafa starfað á vegum Sjálfsbjargar félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu frá 1958 til 2018. Jafnframt sem skoða má skjal í kaflanum sem sýnir alla nefndarmenn sem hafa setið í þessum nefndum. Skjalið var unnið árið 2018 upp úr aðalfundargerðum félagsins.
Frá árinu 2003 hafa ekki verið kosnar nefndir í félaginu samkvæmt fundargerðum aðalfunda félagsins en í stað þess hafa ýmis verkefni verið í gangi eins og bingókvöld, Uno kvöld, samvera og súpa á þriðjudögum, Kósý saman hópurinn á þriðju og fimmtudögum og svo Krika samveran frá vori fram á haust. Þá hefur félagið haldið þorrablót, haustfagnað með Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík og farið í vorferð. Margar þessara nefnda eru barns síns tíma en segja til um starfsemi félagsins í gegnum árin.
| skemmtinefnd | bridgenefnd | taflnefnd | félagsvist | veiðinefnd |
| Bazarnefnd | ||||
| Undirbúningsnefnd klúbba | ||||
| Föndurnefnd | ||||
| Vinnustofustjórn | ||||
| Ferðanefnd | ||||
| Bygginganefnd | ||||
| Félagsmálanefnd | ||||
| Ritnefnd | ||||
| Laganefnd | ||||
| Menningarsjóður | ||||
| Merkja og happdrættisnefnd | ||||
| Dansnefnd | ||||
| Ferlinefnd | ||||
| Atvinnumálanefnd | ||||
| Æskulýðsnefnd | ||||
| Húsnæðismálanefnd | ||||
| Farsímanefnd | ||||
| Kynningarnefnd | ||||
| Hljómtækjanefnd | ||||
| Fjáröflunarnefnd | ||||
| Makaskiptanefnd | ||||
| Ferðaþjónusta fatlaðra | ||||
| Kosninganefnd | ||||
| Kjörnefnd | ||||
| 2017-2019 | ||||
| söguvinna |
(Textahöfundur: Sævar Guðjónsson, 2020)
